Stjórn Starfsendurhæfingar Norðurlands (SN) auglýsir eftir ráðgjafa í starfsendurhæfingu.
Hlutverk Starfsendurhæfingar Norðurlands er að veita einstaklingum starfsendurhæfingu sem hafa verið utan vinnumarkaðar um tíma, s.s. vegna veikinda, slysa eða félagslegra aðstæðna, sem eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn.
SN starfar eftir lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.
Um er að ræða 80% stöðu.
Helstu verkefni;
Verkefnastjórn
Ráðgjöf við notendur í starfsendurhæfingu
Greiningar- og meðferðarvinna
Kennsla
Hópastarf
Samstarf við samstarfsaðila og tengslastofnanir
Þróunarvinna
Menntun og hæfniskröfur;
Háskólamenntun á sviði félags- og/eða heilbrigðisvísinda
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
Reynsla af teymisvinnu
Góðir samstarfshæfileikar
Leiðtogahæfileikar og jákvætt viðmót
Reynsla af ráðgjöf í starfsendurhæfingu æskileg
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2018.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst.
Umsókn berist til Starfsendurhæfingar Norðurlands Glerárgötu 36, 600 Akureyri eða á netfang; geirlaug@stn.is
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug G. Björnsdóttir framkvæmdastjóri í síma 420-1020 / 695-5899.
Hægt er að kynna sér starfsemina á heimasíðunni, http://www.stn.is