Stjórn Starfsendurhæfingar Norðurlands (SN) auglýsir eftir öflugum, metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga.
Hlutverk Starfsendurhæfingar Norðurlands er að veita einstaklingum starfsendurhæfingu sem hafa verið utan vinnumarkaðar um tíma, s.s. vegna veikinda, slysa eða félagslegra aðstæðna, sem eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn.
SN starfar eftir lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.
Um er að ræða 100% stöðu. Starfið er fjölþætt og gefandi og krefst sjálfstæðra vinnubragða og sveigjanleika.
Helstu verkefni;
Stjórnunarleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi Starfsendurhæfingar Norðurlands
Starfsmannamál
Ábyrgð á faglegu starfi
Samstarf við verkkaupa og notendur þjónustunnar
Þróunarvinna
Menntun og hæfniskröfur;
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
Veruleg reynsla af teymisvinnu og meðferðarstarfi
Þarf að hafa leiðtogahæfileika, ríka þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Reynsla af starfi í starfsendurhæfingu er æskileg
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2018.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst.
Umsókn berist til Starfsendurhæfingar Norðurlands Glerárgötu 36, 600 Akureyri eða á netfangið; geirlaug@stn.is
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug G. Björnsdóttir framkvæmdastjóri í síma 420-1020 / 695-5899.
Hægt er að kynna sér starfsemina á heimasíðunni, http://www.stn.is