JobAssist

JobAssist er svokallað yfirfærsluverkefni undir merkjum Leonardo áætlunarinnar, frá Búlgaríu sem er fjármagnað af Evrópusambandinu. Verkefnið er til tveggja ára og er stjórnað af Póllandi, en Búlgaría sér um faglega handleiðslu. Samstarfslönd SN eru auk Póllands og Búlgaríu; Þýskaland, Ítalía og Spánn. Haldnir voru tveir fundir í á árinu. Fyrri fundurinn var í janúar í Rostock í Þýskalandi og sá seinni á Íslandi í byrjun júlí. Verkefnið miðar að því að þjálfa atvinnuleitendur, sem hafa verið lengi frá vinnu, í atvinnuleit á vinnumarkaði. Markhóparnir eru tveir, annars vegar ungt fólk undir 25 ára aldri og hins vegar atvinnuleitendur sem eru eldri en 45 ára. Verkefnislok eru í desember 2015. Heimasíða verkefnisins er; http://www.jobassist.eu .

Starfsmenn verkefnisins fyrir SN eru Geirlaug G. Björnsdóttir framkvæmdastjóri og Jóhanna Bergsdóttir sálfræðingur.