Ársfundur Starfsendurhæfingar Norðurlands vegna starfsársins 2020 var haldinn 25. mars

Frá vinstri: Ingvar Þóroddsson, fundarstjóri, Jakobína E. Káradóttir, framkvæmdarstjóri, & Soffía Gí…
Frá vinstri: Ingvar Þóroddsson, fundarstjóri, Jakobína E. Káradóttir, framkvæmdarstjóri, & Soffía Gísladóttir, stjórnarformaður.

Þó að árið 2020 hafi óneitanlega haft í för með sér ýmsar áskoranir tókst bæði starfsemi og rekstur Starfsendurhæfingar Norðurlands (SN) vel, eins og reyndar ársfundurinn sem var haldinn að hluta í gegnum fjarfundarbúnað vegna hertra sóttvarnaraðgerða.

Þess má geta að breytingar urðu í starfsmannahópnum en tveir nýir starfsmenn komu til liðs við félagið og tveir létu af störfum. Ráðningar á tveimur nýjum starfsmönnum voru svo fyrirhugaðar í byrjun árs 2021.

Fjöldi einstaklinga í þjónustu hjá SN árið 2020 voru 95 og bárust flestar tilvísanir frá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, en einnig frá Vinnumálastofnun og Akureyrarbæ.

Þjónustuþyngd þeirra mála sem vísað er til SN hefur aukist á undanförnum árum. Flestir í notendahópi SN glíma við fjölþættan vanda og þurfa þar af leiðandi á langtíma endurhæfingu að halda. Þetta kallar á aukna einstaklingsmiðaða- og fjölþætta nálgun. Einnig kallar þetta á samfellda þjónustu í lengri tíma með aðkomu margra fagstétta og samvinnu á milli kerfa. Sem fyrr er mikilvægt að horfa heildrænt á veitingu þjónustunnar og mæta notandanum þar sem hann er staddur.

Starfsendurhæfing Norðurlands hefur á að skipa fjölbreytt teymi sem hefur víðtæka reynslu á sviði starfsendurhæfingar og er lykilinn að góðri vinnu og árangri SN í gegnum tíðina. Starfsmenn leggja sig fram við að mæta þörfum hvers einstaklings og finna þá leið sem hentar honum best. Á árinu 2020 stunduðu þátttakendur SN hópefli og sjálfsstyrkingu, líkamsþjálfun og heilsueflingu svo eitthvað sé nefnt, þrátt fyrir hinar ýmsu hagnýtu áskoranir sem COVID-19 hafði í för með sér. Einnig nýttu margir sér sálfræðiviðtöl, félagsráðgjöf, heilsuráðgjöf, iðjuþjálfun, fjármálaráðgjöf, markþjálfun og fleira hjá sérfræðingum SN. Þátttakendur fengu að auki reglulega stuðningsviðtöl hjá ráðgjöfum SN en þeir fylgjast með framvindu endurhæfingarinnar.

Starfsfólk SN vinnur að gerð aukinna og bættra úrræða til þess að mæta þörfum samfélagsins fyrir starfsendurhæfingu. Við horfum björtum augum til næsta starfsárs og hlökkum til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Ársskýrsla 2020