Menntasmiðja kvenna er eins og nafnið gefur til kynna, aðeins fyrir konur. Markmiðið er sjálfstyrking og er það rauði þráðurinn í þessu úrræði. Í boði er hópefli og grímugerð, sjálfsstyrking, dansspuni og hreyfing, líkamsbeiting við störf, handverk, myndlist, íslenska, enska, tölvur og myndvinnsla, umhverfisvernd, kynnisferðir, heilsa kvenna, lestrarskimun, hagnýt stærðfræði, vinnuklúbbur, starfsvika og tímar skipulagðir af nemendum. Utan þessa föstu þátta er einnig farið á söfn, í haustferðalag og í vinnustaðaheimsóknir.
Tímalengd: Frá september til miðjan desember, frá kl. 9:00 – 15:00 alla virka daga.
Næsti hópur byrjar 9. september.
Tilvísanir þurfa að hafa borist fyrir 31. ágúst.
Menntasmiðja kvenna hófst sem þróunarverkefni haustið 1994 með það að markmiði að skapa skóla með innihaldi og andrúmslofti sem gæfi konum án atvinnu nýjan grunn að byggja á í lífi og starfi. Hugmyndafræði Menntasmiðju kvenna var sótt til kvennadagháskóla á Norðurlöndunum, en þeir byggja á sömu hugmyndafræði og lýðháskólar þar sem kennd er lífshæfni.

