Starfsendurhæfing Norðurlands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin á vef Starfsendurhæfingar Norðurlands

Hlutverk Starfsendurhæfingar Norðurlands er að veita starfsendurhæfingu þeim einstaklingum sem vegna veikinda, slysa og félagslegra erfiðleika eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn.

Markmiðið er að veita þátttakendum  ráðgjöf og stuðning á heildstæðan hátt á meðan á endurhæfingu stendur. Unnið er með alla þá þætti sem hver þátttakandi metur í samráði við ráðgjafa SN, að hann þurfi á að halda til að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Hugmyndin er sú að þátttakandinn komi með virkum hætti að sinni endurhæfingu strax í upphafi og byrji þ.a.l. strax að axla ábyrgð á sinni endurhæfingu. Hlutverk SN er að útvega þá þjónustu sem hann þarf.

SN býður upp á mismunandi endurhæfingarleiðir, ein leiðin er langtíma endurhæfing sem er námstengd en þátttakendur stunda einingabært nám á framhaldsskólastigi. SÍMEY hefur skipulagt það nám í samvinnu við VMA á Akureyri og /eða Framhaldsskólann á Húsavík. Margar styttri endurhæfingarleiðir eru einnig í boði. Auk þess er boðið upp á fjármálaráðgjöf, sálfræðiþjónustu, hópefli/sjálfsstyrkingu og líkamsþjálfun. Öll endurhæfingin miðar að því að einstaklingurinn fari í vinnu eða áframhaldandi nám að endurhæfingu lokinni. Einnig felur hugmyndin í sér samvinnu stofnana og kerfa um samþættingu velferðarþjónustu.

Þátttakendur starfsendurhæfingarinnar eru einstaklingar sem eru á örorku- eða endurhæfingarlífeyri hjá TR og lífeyrissjóðum og fólk sem er á bótum hjá Vinnumálastofnun eða sveitarfélagi. Einnig einstaklingar hjá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði.

Starfsendurhæfing Norðurlands | Glerárgötu 36, 600 Akureyri | Sími 420 1020 | stn@stn.is